Þjónustustjóri verkstæðis Krafts er Gunnar Jónsson og verkstjóri er Atli Már Þórarinsson. Með þeim starfar úrvalslið tæknimanna, sem margir hafa áratugareynslu af vörubílaviðgerðum.
Almennur opnunartími verkstæðisins er frá kl. 8-18 mánudaga til fimmtudaga og frá kl. 8-15 á föstudögum.
Í neyðartilfellum utan opnunartíma er hægt að ná í verkstjóra í síma 896 8028. Vinsamlegast athugið að útkall utan opnunartíma reiknast að lágmarki 4 tímar í næturvinnu.
Tæknilegar upplýsingar:
Á heimasíðu MAN eru ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir verkstæði, eigendur og bílstjóra. Séu þær upplýsingar, sem óskað er eftir, ekki aðgengilegar á netinu er sjálfsagt mál að útvega þær gegn hóflegu gjaldi.