Hero X4-Life neyðarvasaljósin eru búin ýmsum búnaði sem reynst getur dýrmætur í neyðartilfellum.
Auk þess að vera hefðbundið vasaljós, er að finna á ljósinu beltaskera, rúðubrjót, rauðar blikkandi díóður og segla á enda þess til að festa það við málmfleti. Hægt er að láta ljósið festast við t.d. bretti á bíl og láta rauðar LED-díóður blikka til að vara aðkomandi umferð við hættu.
– Vasaljós
– Beltaskeri
– Rúðubrjótur
– Varúðarljós
Ljósið gengur fyrir tveimur AA-rafhlöðum, sem fylgja ekki.
Verð: 1.000 kr.- m/VSK.
- Hero X4-Life
- Rúðubrjóturinn.
- Beltaskerinn.
- Varúðardíóðurnar. Hægt er að láta þær blikka einar og sér, eða þegar kveikt er á vasaljósinu.
- Seglarnir til að festa ljósið við málmflöt.
- Festing fyrir ljósið fylgir með, en hægt er að festa hana með skrúfum eða með spöng.