Kraftur hf. býður upp á mikið úrval af vörubílum og rútum.  MAN vörubílar hafa fyrir löngu sannað ágæti sitt við Íslenskar aðstæður, enda hefur MAN verið með söluhæstu vörubílum á Íslandi um árabil.  Kraftur hf. býður einnig upp á götusópa í ýmsum stærðum frá Bucher-Schörling,  einum þekktasta framleiðanda á þessu sviði.  Þá hefur fyrirtækið söluumboð fyrir ZAUGG Ag., sem framleiða m.a. snjóblásara, flugbrautasópa og snjóplóga.  Kraftur hf. hefur, um áratugaskeið, boðið upp á vörubílapalla, vagna og sturtudælur frá MEILLER.